Gervigreind í reksturinn, eitt skref í einu
Við byrjum á spjalli á vefnum þínum sem svarar viðskiptavinum strax, á íslensku og ensku. Þegar það skilar sér bætum við við því sem reksturinn þarf.
Prófaðu spjallið hér í horninu ↘
Eruð þið með opið á laugardögum?
Já, frá 10 til 16 alla laugardaga.
Má ég heyra í einhverjum?
Að sjálfsögðu. Ég læt starfsfólkið vita núna.
Fyrsta skrefið: netspjall
Spjallbóla með gervigreind sem við smíðuðum sjálf og keyrum á okkar eigin vefjum.
- Svarar út frá þínum vef og þínu efni
- Á íslensku og ensku, allan sólarhringinn
- Lætur vita í síma þegar gestur vill manneskju
- Öll samtöl í einu innhólfi, frá öllum vefjum
- Innifalið í öllum rekstrarleiðum
24/7
svör frá gervigreind, á íslensku og ensku
1 til 6 sek.
þar til svarið birtist
Í síma
tilkynning þegar gestur vill manneskju
Fleiri lausnir, þegar þörf er á
Þegar spjallið er komið í gang sést hvað annað borgar sig. Hver lausn er smíðuð utan um reksturinn.
Spjall sem þekkir vöruúrvalið
Spjallið les vörurnar, ferðirnar eða þjónustuna beint úr kerfinu þínu og hjálpar gestum að finna það sem hentar, með réttum verðum.
Á Travelers Choice svarar spjallið um ferðirnar
Texti úr gögnunum þínum
Lýsingar á vörum, ferðum eða síðum skrifaðar út frá gögnunum sem þú átt nú þegar, á þínu máli og í þínum tón.
Ferðalýsingar Travelers Choice eru skrifaðar svona
Tenging við kerfin þín
Gervigreind sem flettir upp stöðunni í bókunar, birgða eða bókhaldskerfinu og svarar út frá henni. Smíðað utan um þinn rekstur, þegar þörf er á.
Vefirnir okkar tala nú þegar við Bókun, TourDesk og WeTravel
Svona fer innleiðingin fram
Lítið fyrst, meira þegar það sannar sig.
- 01
Spjallið fyrst
Við setjum spjallið á vefinn þinn og kennum því efnið sem þar er.
- 02
Þú sérð hvað fólk spyr um
Öll samtöl lenda í innhólfinu. Þar sést hvað viðskiptavinir vilja vita.
- 03
Við bætum við þegar þörf er á
Tenging við kerfi eða texti úr gögnum, þegar spurningarnar sýna að það borgar sig.
- 04
Þú ræður hraðanum
Ekkert stærra fyrr en það minna skilar sér. Hvert skref á föstu verði.
Sjáum hvað vefurinn þinn gæti orðið
Sendu okkur slóðina. Við mælum hraðann, skoðum stöðuna í Google og segjum þér hvað myndi breytast, með föstu verði.
Fast verð, engin aukagjöld · Svar innan 24 klst