Þar sem hönnun og tækni mætast
Blynk er íslensk vefstofa sem smíðar hraða vefi fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og tengir þá við kerfin sem reksturinn byggir á.
Við flytjum vefi af WordPress
Við byggjum gamla og hæga vefi upp á nýtt á Next.js. Slóðirnar eru óbreyttar, leitarstaðan helst og vefurinn verður mun hraðari.
Við tengjum vefi við önnur kerfi
Ef bókunarkerfi, netverslun, vöruskrá eða greiðslugátt er með opið viðmót getum við tengt vefinn beint við kerfið, án innfelldra viðmóta frá öðrum.
Við smíðum hugbúnað
Sum verkefni kalla á meira en vefsíðu, svo sem innskráningu, gagnagrunna, greiðslur eða markaðstorg. Slíkar lausnir smíðum við eins og hvern annan hugbúnað.
Við höldum þeim gangandi
Við sjáum um hýsingu, vöktun, uppfærslur og breytingar svo vefurinn haldist hraður til lengri tíma.
Fjórar reglur sem við vinnum eftir
Þú talar við þann sem smíðar
Engir milliliðir eða verkefnastjórar koma að verkinu, svo óskir þínar berast beint til þess sem vinnur það.
Við tökum færri verkefni en við gætum
Þannig getum við fylgt hverju verkefni til enda og lokið því vel.
Við notum þetta sjálf
Vefirnir sem við rekum sjálf standa á sama grunni og þeir sem við smíðum fyrir þig. Við rekumst á vandamálin á undan þér.
Við höldum okkur við staðreyndir
Við birtum engar uppspunnar tölur, beitum ekki falskri tímapressu og lofum engu sem við getum ekki mælt.