Persónuvernd
Hvaða gögnum við söfnum, hvers vegna, og hvernig þú dregur samþykki þitt til baka.
Mælingar
Við notum Google Analytics 4 til að sjá hvaða síður fólk les og hvaðan það kemur. Mælingin hefst ekki fyrr en þú hefur samþykkt hana. Þangað til er analytics_storage stillt á „denied“ og engin mælingakaka er sett.
Við notum líka Vercel Analytics og Speed Insights. Þau setja engar kökur, geyma engin persónugreinanleg gögn og keyra því án samþykkis.
Við auglýsum á Facebook og Instagram og notum Facebook pixel til að sjá hvaða auglýsingar skila fyrirspurnum. Hann er ekki sóttur fyrr en þú samþykkir: ef þú hafnar er skriftan aldrei hlaðin og engin auglýsingakaka sett. Meta fær þá að vita að fyrirspurn barst, en hvorki nafn þitt, netfang, símanúmer né skilaboðin.
Fyrirspurnir
Þegar þú sendir fyrirspurn í gegnum vefinn fara nafn, netfang, sími, fyrirtæki, vefslóð og skilaboðin þín í tölvupósti til okkar. Við notum Resend til að senda þann póst.
Þessar upplýsingar eru notaðar til að svara þér og til einskis annars. Þær eru ekki seldar, ekki settar á póstlista og þeim er ekki deilt með þriðja aðila.
Að draga samþykki til baka
Þú getur skipt um skoðun hvenær sem er. Hreinsaðu vefgögn fyrir þetta lén í vafranum þínum og samþykkisspurningin birtist aftur næst þegar þú kemur.
Þú getur einnig sent okkur tölvupóst og við eyðum þeim upplýsingum sem við geymum um þig.
Hafðu samband
Fyrirspurnir um persónuvernd fara á hallo@blynk.is.
Ábyrgðaraðili er Blynk ehf..