Blynk.

Áskriftarsíður með sjálfvirkri innheimtu

Við smíðum vefi þar sem fólk skráir sig inn og greiðir reglulega. Slíkur vefur er í raun hugbúnaður og þá skiptir máli hvernig hann er byggður.

Takmarkanir áskriftarviðbóta

Áskriftarviðbót við WordPress dugar þangað til eitthvað fer úrskeiðis: greiðsla mistekst, einhver segir upp á miðju tímabili eða reikningur þarf að fara í íslenskt innheimtukerfi. Þá þarf að laga viðbót sem einhver annar skrifaði, í kerfi sem heldur utan um greiðslur viðskiptavina.

Hvernig þetta virkar

Eigin innskráning

Notendur, lykilorð og lotur eru geymd í þínum eigin gagnagrunni, án áskriftar hjá þriðja aðila sem hækkar í verði með hverjum notanda.

Áskriftir sem halda utan um sig

Við skrifum og prófum reglurnar um tímabil, uppsagnir, hlé og endurnýjun í stað þess að reiða okkur á viðbót.

Íslensk innheimta

Við tengjum vefinn við íslensk innheimtukerfi svo kröfur og reikningar skili sér þangað sem bókhaldið er.

Tilkynningar sem berast

Sjálfvirkur tölvupóstur er sendur við skráningu, endurnýjun og misheppnaða greiðslu, frá léni sem lendir ekki í ruslpósti.

Tækni

  • Next.js
  • PostgreSQL
  • Better Auth
  • Payday
  • Resend