Blynk.

Bókunarsíður með framboði í rauntíma

Flest ferðaþjónustufyrirtæki fella bókunarviðmót inn í vefinn sinn. Við sækjum gögnin beint úr bókunarkerfinu og birtum þau í þinni hönnun.

Gallar innfelldra bókunarviðmóta

Innfellt viðmót kemur með eigið letur, eigin liti og eigin hleðslu, svo vefurinn lítur út eins og tvær aðskildar síður. Í síma fer það oft út fyrir skjáinn en meirihluti gesta bókar í síma. Auk þess hætta mælingar að fylgja gestinum þegar greiðslan færist á annað lén, svo ekki sést hvaða leið skilaði bókuninni.

Hvernig þetta virkar

Lifandi gögn í þinni hönnun

Við sækjum framboð, verð og brottfarir á bakenda og birtum þau í þinni hönnun, svo gestir upplifa vefinn sem eina heild.

Lyklar aldrei í vafra

Aðgangslyklar að bókunarkerfinu eru geymdir á bakenda. Lyklar sem sjást í vafranum eru algengasta öryggisgloppan í innfelldum lausnum.

Greiðslan þar sem hún á heima

Greiðslan klárast áfram hjá bókunarkerfinu, svo engin kortagögn fara um vefinn og þú berð enga PCI ábyrgð.

Mælingar alla leið

Mælingar fylgja gestinum yfir á greiðslusíðuna, svo þú sérð hvað skilar bókun og hvað ekki.

Kerfi sem við tengjum við

  • Bókun
  • TourDesk
  • FareHarbor
  • Rezdy
  • WeTravel
  • Regiondo