Hraðar og öruggar fyrirtækjasíður
Flestar íslenskar fyrirtækjasíður eru gamlar síður á WordPress sem hafa hægt á sér ár frá ári. Við byggjum þær upp á nýtt án þess að þú tapir því sem virkar.
Af hverju gamli vefurinn hægir á sér
Vefur sem var fljótur árið 2019 er það sjaldnast í dag. Hver viðbót sem bætt hefur verið við keyrir eigin kóða hjá hverjum gesti, myndir eru margfalt stærri en þær eru sýndar og textinn birtist ekki fyrr en letrið hefur hlaðist. Þetta gerist smám saman og fer oft fram hjá fólki þar til fyrirspurnum fækkar.
Hvernig þetta virkar
Þú heldur ritlinum
WordPress verður áfram ritstjórnarkerfið þitt, með sömu innskráningu og sama ritli. Gestir vefsins sjá hins vegar ekki lengur WordPress.
Slóðirnar haldast 1:1
Hver slóð er kortlögð áður en nokkuð er smíðað og þú samþykkir kortið. Titlar og lýsingar fylgja með.
Hraði staðfestur með mælingum
Þú færð mælingu í Lighthouse fyrir og eftir. Þessi vefur fær 99 af 100 á farsíma og hver sem er getur sannreynt það.
Öryggi frá fyrsta degi
Forritunarviðmót WordPress er lokað almenningi, öryggishausar eru virkir og engin viðbót er opin fyrir árásum.
Tækni
- Next.js
- React
- TypeScript
- WordPress headless
- Vercel