Blynk.

Netverslanir sem hlaðast hratt

Við smíðum hraða framhlið fyrir netverslanir, því hver sekúnda í bið kostar sölu. Verslanir á WooCommerce eru sjaldnast hraðar að óbreyttu.

Af hverju verslanir eru hægar

Vöruyfirlit með fimmtíu vörum þýðir fimmtíu myndir, síur sem hlaða síðuna upp á nýtt og viðbætur sem hver um sig bætir við kóða. Í síma á íslensku farsímaneti líða þá nokkrar sekúndur þar til fyrsta varan birtist og gesturinn fer oft áður en hann setur nokkuð í körfuna.

Hvernig þetta virkar

Vörur sóttar á bakenda

Vöruskráin er sótt úr verslunarkerfinu og síðurnar smíðaðar fyrirfram. Gesturinn bíður ekki eftir gagnagrunni.

Verslunarkerfið helst óbreytt

Lager, pantanir og greiðslur verða áfram þar sem þau eru í dag og viðskiptavinir upplifa hraðari verslun.

Síur sem hlaða ekki upp á nýtt

Síun eftir stærð eða lit gerist samstundis, án þess að síðan sé hlaðin upp á nýtt.

Greiðslur án PCI ábyrgðar

Greiðslan klárast hjá greiðslugáttinni, svo engin kortagögn fara um vefinn þinn.

Kerfi sem við tengjum við

  • WooCommerce
  • Shopify
  • Stripe
  • Rapyd
  • Netgíró
  • Aur