Blynk.

Sérsmíðuð vefforrit fyrir fyrirtæki

Við smíðum vefforrit fyrir verkefni þar sem fólk skráir sig inn, gögn eru geymd og greiðslur fara fram. Slík verkefni þarf að byggja sem hugbúnað frá byrjun.

Takmarkanir viðbóta þegar gögnin skipta máli

Viðbætur duga vel í mörgum verkefnum. Vandinn kemur þegar gögnin skipta máli: þrjár viðbætur geyma sama notandann á þremur stöðum, engin þeirra veit af hinum og enginn getur svarað einfaldri spurningu um hver gerði hvað og hvenær. Þá er ódýrara að byggja kerfið en að halda áfram að gera við það.

Hvernig þetta virkar

Innskráning sem þú átt

Notendur, aðgangsstýring og lykilorð eru geymd í þínum eigin gagnagrunni, óháð verðskrá þriðja aðila.

Gögnin á einum stað

Við setjum gögnin í einn gagnagrunn með skýrri byggingu í stað þess að sömu upplýsingar séu geymdar á fjórum stöðum sem stemma ekki saman.

Greiðslur án PCI ábyrgðar

Kortagögn fara aldrei í gegnum kerfið þitt. Greiðsluaðilinn sér um þau og þú færð staðfestinguna.

Keyrir í símanum

Vefforrit keyrir í vafranum og þarf hvorki niðurhal né samþykki í verslunum Apple og Google. Ein útgáfa þjónar öllum notendum.

Tækni

  • Next.js
  • React
  • TypeScript
  • PostgreSQL
  • Better Auth
  • Vercel