Blynk.

6 mín lestur

Hvernig á að búa til heimasíðu fyrir fyrirtæki?

Það hefur aldrei verið auðveldara að búa til heimasíðu. Á einu kvöldi geturðu sett upp vef sem lítur sómasamlega út. Erfiði hlutinn er ekki að setja hann upp, heldur að hann geri eitthvað fyrir reksturinn eftir að hann fer í loftið. Hér er röðin sem sparar mest, hvort sem þú gerir þetta sjálf/ur eða færð aðstoð.

Byrjaðu á því sem vefurinn á að gera

Skrifaðu niður eitt markmið: bókanir, fyrirspurnir, sala, eða að fólk finni símanúmerið og opnunartímann. Hver síða á vefnum á svo að leiða að því markmiði. Vefur sem á að gera allt gerir yfirleitt ekkert vel.

Lénið á nafni fyrirtækisins

.is lén eru skráð hjá ISNIC. Gættu þess að fyrirtækið þitt sé skráð rétthafi lénsins, ekki sá sem smíðar vefinn. Það er algengt að fyrirtæki komist að því árum seinna að lénið þeirra er á nafni fyrrverandi starfsmanns eða vefstofu.

Settu líka upp netfang á léninu, nafn@fyrirtaekid.is. Það lítur betur út en ókeypis netfang og helst þó þú skiptir um vef.

Efnið á undan útlitinu

Skrifaðu textann áður en þú velur útlit: hvað þú gerir, fyrir hvern, hvað það kostar og hvernig næst í þig. Útlit sem er valið á undan efninu endar með texta sem er troðið í kassa sem voru hannaðir fyrir eitthvað annað.

Þínar eigin myndir af fólkinu, staðnum og verkunum segja meira en myndir úr myndabanka. Símamynd í góðri birtu er betri en falleg mynd sem gæti verið af hvaða fyrirtæki sem er.

Sjálf/ur eða með aðstoð?

Kerfi eins og Wix og Squarespace eru fljótleg og ódýr í byrjun og henta vel ef vefurinn er nafnspjald sem fáir heimsækja. Gallinn kemur seinna: þú leigir vefinn, hraðinn er takmarkaður og það er erfitt að flytja efnið annað ef þú vilt skipta.

Aðstoð borgar sig þegar vefurinn á að selja eða bóka, þegar hann þarf að tala við annað kerfi, eða þegar Google skiptir þig máli. Þá er það sem er gert fyrsta daginn það sem ræður hvort vefurinn finnst.

Það sem þarf að vera í lagi daginn sem hann fer í loftið

Hver síða hefur sinn eigin titil og lýsingu fyrir Google. Vefurinn er prófaður í síma. Search Console er tengt, svo þú sérð hvað fólk leitar að. Google Business Profile er stofnað með sama heimilisfangi og síma og á vefnum. Ef þú notar mælingar eða auglýsingapixla þarf vafrakökuborða og persónuverndarstefnu.

Skrifaðu niður eitt markmið vefsins og settu lénið á nafn fyrirtækisins áður en þú velur nokkurt kerfi. Allt annað má laga seinna, en þessu tvennu er erfitt að breyta.