6 mín lestur
Að stofna netverslun: það sem þarf áður en fyrsta varan selst
Netverslun er fljót að setja upp en lengi að laga ef grunnurinn er rangur. Flest af því sem skiptir máli er ákveðið áður en fyrsta varan fer á vefinn: hvar er greitt, hvernig varan kemst til kaupandans og hvað gerist ef hann vill skila henni. Hér er listinn, í þeirri röð sem við förum í gegnum hann.
Kerfið: WooCommerce eða Shopify
WooCommerce er ókeypis viðbót við WordPress og þú átt allt sjálf/ur, en berð líka ábyrgð á hýsingu, uppfærslum og hraða. Shopify er leigt gegn mánaðargjaldi og sér um tæknina, en margt kostar aukalega í gegnum smáforrit. Veldu eftir því hver á að sjá um verslunina á hverjum degi. Við förum dýpra í samanburðinn í greininni um vefumsjónarkerfi.
Greiðslugáttin
Til að taka við kortum þarftu samning við færsluhirði og greiðslugátt sem tengist kerfinu þínu. Athugaðu að tengingin sé til og virki með þínu kerfi áður en þú skrifar undir, og spurðu hvað hver færsla kostar.
Kortanúmerin eiga aldrei að fara um vefinn þinn sjálfan. Greiðslugáttin tekur við þeim beint, sem er bæði öruggara og sparar þér mikla ábyrgð.
Sendingar
Ákveddu hvernig varan kemst til kaupandans: með Póstinum, Dropp, sótt á staðinn eða send heim. Sendingarkostnaðurinn þarf að sjást áður en kaupandinn kemur að greiðslunni, því óvæntur kostnaður á síðasta skrefi er algeng ástæða þess að fólk hættir við. Ef sendingarfyrirtækið býður tengingu við kerfið þitt sparar það þér að slá inn hverja sendingu.
Skilmálar og verð
Í skilmálum þarf að koma fram hver selur, með nafni, kennitölu, heimilisfangi og VSK númeri, ásamt afhendingartíma og rétti til að skila. Kaupandi á netinu á almennt fjórtán daga fráfallsrétt, og verð til neytenda á að birta með virðisaukaskatti.
Neytendastofa gefur út leiðbeiningar um netverslun sem vert er að lesa áður en þú opnar.
Myndir og vörulýsingar
Taktu myndir af öllum vörum á sama bakgrunni og í sömu birtu, svo vöruflokkurinn líti út sem ein heild. Minnkaðu myndirnar áður en þær fara inn, því þær eru oftast það þyngsta á síðunni.
Skrifaðu lýsingarnar sjálf/ur í stað þess að afrita texta framleiðandans. Hann er þegar á mörgum öðrum vefjum og Google hefur enga ástæðu til að sýna þinn frekar en hina.
Hraðinn frá fyrsta degi
Verslun er sjaldan hæg daginn sem hún opnar. Hún hægist eftir því sem vörum og viðbótum fjölgar. Mældu vöruflokkasíðu í síma í PageSpeed Insights strax við opnun og aftur eftir nokkra mánuði, svo þú sjáir hvenær hún byrjar að síga.
Eftir opnun: láttu Google vita
Tengdu Search Console og sendu inn veftréð. Í Google Merchant Center geturðu skráð vörurnar svo þær birtist í Shopping flipanum hjá Google án endurgjalds. Og settu upp Google Business Profile ef þú ert líka með verslun eða afgreiðslu á staðnum.
Gakktu frá greiðslugátt, sendingum og skilmálum áður en þú setur fyrstu vöruna inn. Það er það sem kaupandinn rekst á í síðasta skrefinu, og þar tapast salan ef eitthvað vantar.
LausninNetverslanir