Blynk.

6 mín lestur

WooCommerce netverslun: af hverju hún hægist og hvað lagar það

WooCommerce er ókeypis viðbót sem breytir WordPress vef í netverslun. Hún er sveigjanleg og ódýr í byrjun, og þess vegna keyra svo margar íslenskar vefverslanir á henni. Vandinn kemur seinna: verslunin hægist eftir því sem vörum, viðbótum og pöntunum fjölgar.

Af hverju WooCommerce verslanir hægjast

Hver síða í WooCommerce er sett saman á þjóninum í hvert sinn sem einhver opnar hana, úr gagnagrunni sem stækkar með hverri pöntun. Vöruflokkur með fimmtíu vörum þýðir fimmtíu myndir og síur sem hlaða síðuna upp á nýtt.

Svo bætast við viðbætur: greiðslugátt, sendingar, umsagnir, afslættir, tungumál. Hver þeirra er skynsamleg ein og sér, en hver bætir við kóða sem hleðst, oft á öllum síðum.

Mældu réttu síðurnar

Forsíðan er sjaldnast vandinn. Mældu vöruflokkasíðu og vörusíðu í PageSpeed Insights, í síma. Ef tíminn þangað til þjónninn svarar fyrst er langur liggur vandinn á þjóninum og í gagnagrunninum. Ef hann er stuttur en síðan samt lengi að birtast liggur hann í myndum og kóða.

Lagfæringar sem virka á núverandi verslun

Minnkaðu myndir niður í þá stærð sem þær birtast í. Fjarlægðu viðbætur sem enginn notar lengur. Notaðu skyndiminni fyrir vöru og flokkasíður, en aldrei fyrir körfu og greiðslu. Færðu verslunina á hýsingu sem er gerð fyrir WooCommerce. Þetta eru ódýrustu lagfæringarnar og skila oft miklu.

Þegar lagfæringar duga ekki: ný framhlið

Ef verslunin er enn hæg eftir þetta er það uppbyggingin sjálf. Þá er hægt að halda WooCommerce fyrir vörur, lager, pantanir og greiðslur, en smíða framhliðina sem gestir sjá sérstaklega. Hún sækir vörurnar úr WooCommerce og birtir þær strax, og greiðslan klárast áfram í sama kerfi.

Hvað breytist ekki

Starfsfólkið vinnur áfram í sama WooCommerce stjórnborði. Greiðslugáttin, sendingarnar og bókhaldstengingarnar haldast. Pantanir berast eins og áður. Það eina sem viðskiptavinurinn finnur er að verslunin er orðin hröð.

Mældu vöruflokkasíðu í síma, ekki forsíðuna. Ef aðalefnið birtist eftir meira en fjórar sekúndur þó myndirnar séu í lagi, þá er það uppbygging verslunarinnar sem heldur aftur af sölunni.

LausninNetverslanir