Blynk.

6 mín lestur

Hvað er headless vefur og hvenær borgar hann sig?

Headless er orð sem selst betur en það útskýrist. Á bak við það er ein einföld hugmynd: kerfið sem þú skrifar í og vefurinn sem gesturinn sér þurfa ekki að vera sami hluturinn.

Hvernig venjulegur WordPress-vefur virkar

Þegar einhver opnar venjulegan WordPress-vef byrjar þjónninn á núlli. Hann vekur PHP, spyr gagnagrunninn nokkurra spurninga, keyrir viðbæturnar, setur útlitið saman og sendir loks síðuna af stað. Þetta gerist upp á nýtt fyrir hvern einasta gest.

Þetta virkar ágætlega þegar fáir eru inni og hægist eftir því sem fleiri koma, sem er nákvæmlega öfugt við það sem þú vilt þegar herferð fer í loftið.

Hvað headless gerir öðruvísi

Í headless uppsetningu heldur WordPress áfram að vera ritstjórnarkerfið þitt. Þú skráir þig inn á sama stað og skrifar eins og þú hefur alltaf gert. Munurinn er að gesturinn sér ekki WordPress. Efnið er sótt þaðan fyrirfram og síðurnar byggðar tilbúnar.

Þegar gestur kemur er ekkert eftir að reikna. Síðan liggur tilbúin og er afhent. Það er ástæðan fyrir hraðamuninum, ekki einhver galdur í nýrri tækni.

Hverju það breytir í raun

Hraðinn er augljósasti munurinn og sá sem mælist. Öryggið breytist líka: það er ekkert innskráningarsvæði á sjálfum vefnum og engar viðbætur í framlínunni, svo yfirborðið sem hægt er að ráðast á er miklu minna.

Hitt sem breytist er hverju þú ræður. Útlitið er ekki lengur bundið við það sem þema leyfir, og efnið er þitt í kerfi sem þú getur flutt úr. Þú ert ekki að skipta um eiganda á vefnum þínum, þú ert að hætta að leigja hann.

Hvenær það borgar sig ekki

Ef vefurinn þinn er fimm síður sem breytast einu sinni á ári og enginn kvartar undan hraðanum, þá er headless óþarfi. Þú værir að borga fyrir sveigjanleika sem þú notar ekki.

Það borgar sig þegar eitthvað af þessu á við: vefurinn er hægur og myndirnar eru þegar í lagi, hann þarf að tala við bókunarkerfi eða vöruskrá, eða þú ert farin að vinna í kringum takmarkanir þemans frekar en með því.

Headless er ekki markmið í sjálfu sér. Það er svar við tveimur vandamálum, hraða og tengingum. Ef hvorugt á við um þig er engin ástæða til að skipta.

Er vefurinn þinn að hægja á sölunni?

Fáðu ókeypis greiningu á hraða, leitarstöðu og því sem er að tapa sölum.

Fáðu tilboð
  • Svar innan 24 klst
  • Engin skuldbinding
  • Fast verð, engin aukagjöld

hallo@blynk.is