Blynk.

6 mín lestur

Hvað er leitarvélabestun? Það sem virkar á Íslandi og það sem er sóun

Leitarvélabestun er seld hér sem mánaðarleg áskrift, oft á 20.000 til 30.000 krónur, og oftar en ekki án þess að nokkur segi þér hvað er gert fyrir peningana. Hér er heiðarlega útgáfan: hvað hefur raunveruleg áhrif á litlum markaði, hvað hefur það ekki, og hvenær þú þarft alls ekki að kaupa þetta.

Hvað er leitarvélabestun?

Leitarvélabestun, oft kölluð SEO, er allt sem gert er til þess að vefurinn þinn birtist ofar þegar fólk leitar í Google að því sem þú býður. Hún skiptist í þrennt. Tæknilegi hlutinn snýst um hvort Google nær að lesa vefinn og hversu hratt hann birtist. Efnið snýst um hvort síðurnar svara því sem fólk leitar að, með orðunum sem það notar. Traustið snýst um hvort aðrir vefir og umsagnir vísa á þig.

Markmiðið er ekki að komast efst á öll orð, heldur að birtast þegar fólk sem gæti keypt af þér leitar. Tíu heimsóknir frá réttu fólki eru meira virði en þúsund frá röngu.

Af hverju þetta er sjaldnast sérstök vara

Stærstur hluti þess sem kallað er leitarvélabestun er einfaldlega það að byggja vefinn rétt: hraði, skýr uppbygging, rétt stigveldi fyrirsagna, lýsigögn sem eru skrifuð en ekki sjálfvirk, og efni sem svarar raunverulegri spurningu. Þetta er ekki viðbót ofan á vef, þetta er vefurinn.

Þegar leitarvélabestun er verðlögð sérstaklega er í reynd verið að rukka aukalega fyrir að sleppa henni ekki. Þess vegna er hún innifalin hjá okkur, ekki af örlæti heldur af því að vefur sem finnst ekki er ekki fullkláraður vefur.

Það sem virkar á íslenskum markaði

Markaðurinn er lítill og það vinnur með þér. Fyrir mörg íslensk leitarorð eru keppinautarnir örfáir og margir þeirra á hægum, gömlum vefjum. Ein vel skrifuð síða um það sem þú gerir, á íslensku, með skýrum titli, getur náð fyrstu síðu án þess að króna fari í auglýsingar.

Google Business Profile skiptir óvenju miklu máli hér, sérstaklega fyrir þjónustu sem fólk leitar að í símanum. Uppfærðar upplýsingar, réttur flokkur og raunverulegar umsagnir hafa oft meiri áhrif en nokkuð sem gert er á vefnum sjálfum.

Hraði er leitarvélabestun

Google mælir hversu hratt síðan þín birtist í síma á venjulegu farsímasambandi og notar það þegar röðin er ákveðin. Þetta er sá þáttur sem oftast má laga mest á stystum tíma, því gamlir vefir á WordPress með tuttugu viðbætur eru sjaldnast nálægt því að standast mælinguna.

Það sem er sóun

Keyptir tenglar eru sóun og geta skaðað þig. Að endurtaka leitarorð í textanum þar til hann hættir að lesast eins og íslenska er sóun. Mánaðarleg skýrsla sem sýnir stöðu á orðum sem enginn leitar að er sóun, sérstaklega ef henni fylgja ekki tölur úr Search Console sem þú getur sjálf/ur flett upp.

Ef þú kaupir leitarvélabestun mánaðarlega skaltu biðja um tvennt: hvaða leitarorð er verið að vinna með, og hvernig birtingar og smellir hafa þróast síðustu þrjá mánuði. Fáist þau svör ekki skriflega ertu ekki að kaupa vinnu, þú ert að kaupa reikning.

Hvað þú átt að mæla

Search Console er ókeypis og sýnir þér birtingar, smelli og meðalstöðu fyrir hvert leitarorð sem vefurinn þinn birtist á. Það er eina mælingin sem skiptir máli, því hún kemur beint frá Google. Fylgstu með birtingum fyrst: þær hreyfast á undan smellunum og segja þér hvort þú stefnir í rétta átt löngu áður en fyrirspurnunum fjölgar.

Áður en þú kaupir leitarvélabestun: opnaðu Search Console og athugaðu hvað vefurinn þinn birtist nú þegar á. Stærsta tækifærið er oftast orð sem þú ert í tíunda sæti á, ekki orð sem þú ert hvergi á.